<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Myndir
Myndirnar mínar


Gestabókin


Sendu mér póst...
...eða hér


Bloggarar...
Arnar Pé
Ágústa
Berta Björg
Brynhildur
Bylgja bloggdrottning
Dóra Björg
Dúllarinn
Einar Hróbjartur
Elva Mágkona
Erla
Eva
Fermingarafmæli
Gúddi Berg
Gústi
Hrafnhildur
Ingibergur
Íris Dögg
Júlla Snúlla
Olgeir
Ottinn minn...
Óli Bjöss
Ólöf
Sara Nikita
Siggeir
Sindri
Tobbi
Trausti stóri bró
Viddi


Litlir bloggarar...
Alexandra Björg
Anton Ingi
Atli Már
Benedikt Blær
Benjamín
Bryndís Hekla
Camilla Dagbjört
Dísa Bjarney
Einar Ólafur
Fríða Margrét
Gabriel
Grindavíkurbörn
Hans Markús
Hjörtur Hilmar
Jón Sverrir
Júlía Ruth
Karen Júlía
Karítas Embla
Kristófer Már
Maron Fannar
Oddur Óli
Patrekur Ívar
Saga
Sandra Björk
Símon Logi
Sveinn Vignir
Tinna Dögg
Tinna Hrönn
Unnar Karl


Fjölmiðlar...
Hinn eini sanni Moggi
Víkurfréttir
Stöð 2
Þvagblaðið


Ýmislegt...
Bjsv.Þorbjörn
Finna.is
Gemlingarnir
Google
Hotmeillinn
Lagatextar
Landsbjörg
Leit.is
SpaLeOn
Verbix
Yahoo





If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed
Wednesday, June 29, 2005
Vopnafjörður :)

Jammz þá er mín bara mætt á Vopnafjörð og er þar hjá Júllu, Einari Óla, Benedikt Blæ, Bertillu og Rannveigu!
En ég hef svo sem ekkert mikið að segja, er bara hérna í algerri afslöppun og líkar bara vel.
En ég ætla nú samt að koma heim fyrir helgi því að þá er stefnan tekin á Þórsmörk...vill einhver koma með?! Það verður nú bara gaman sko :)

En sjitturinn titturinn mellan og hóran ég held að hún Júlianna sé að reyna að drepa mig...sendi mig hérna í einhvern ljósabekk og ég er SKAÐbrunninn ég á aldrei eftir að verða söm aftur!! Ég hugsaði auðvitað með mér að ég væri nú á vopnafirði þeir væru nú varla hættulegir ljósabekkirnir þar...en JÚ Anna Karen mín...passaðu þig!!!

Jæja fólk ég er farin að drekkja mér í aloe vera...þangað til næst...bleble :+)

Posted at 00:22 by EyKey
Comments (7)  

Sunday, June 26, 2005
Jájá komiði öll sæl...

...það er víst orðið ansi langt síðan ég skrifaði hérna inn og margt búið að gerast síðan þá!
Hæst ber að nefna að við skötuhjúin keyptum okkur fellihýsi og þrælvirkar það alveg og svo eftir fyrstu útileguna fannst okkur bíllinn okkar ekki alveg nógu kraftmikill með fellihýsið aftaní á leiðinni upp kambana þannig að við seldum hann bara og erum búin að kaupa okkur nýjann...2001 árg. og Patrol auðvitað :)
Þannig að núna eigum við Yaris, Patrol og fellihýsi...og allt 2001 árg...það mætti halda að við værum millar! En svona er þetta bara víst þegar maður vinnur í lóninu ;)
Við fórum ekkert um þessa helgi sökum léégrar veðurspár og skelltum okkur bara með Siggeiri og Soffíu út að borða og í bíó á föstudagskvöldið. Fórum að sjá Batman Begins...alveg ágætismynd bara.
Svo á laugardaginn voru Otti, Siggi og Siggeir eitthvað að berja bílskúrsþakið sundur og saman þannig að ég flúði bara uppí Borgarfjörð til mömmu og pabba og tók Jónu systur með! Þar átti náttla að vera glampandi sól...eins og alltaf í Borgarfirðinum...en hún hafði eitthvað villst greyið þannig að þar var grenjandi rigning! Þegar heim var komið grilluðum við og kíktum svo í pottinn í gærkvöldi...þvílík snilld þessi pottur!!!
Nú svo fór Otti kl.6 í morgun að aðstoða við upptöku á einhverri auglýsingu þannig að ég er bara ein heima :S
Um næstu helgi er ferðinni heitið í Þórsmörk ásamt öllum Gemlingahópnum...aðrir eru að sjálfsögðu velkomnir með...því fleiri því betra!
Svo núna er ég eitthvað að spá í að reyna að koma mér í heiomsókn austur á land, þar sem að ég er í sumarfríi til 14.júlí í vinnunni og ég ætlaði mér að reyna að kíkja á nýja heimili guðsonarins og svo aðeins til Svövu og Óðins líka.

Nú annars er bara mest lítið að frétta...nema við eru netlaus meðan miklar breytingar eiga sér stað hérna í Heiðarhrauninu :)

Vá ég var næstum búin að gleyma!!! Hjördís og Guðmundur Óli eru að flytja í Grindavík!!!
Jebb þau voru bara allt í einu búin að kaupa hús hérna...þvilík gargandi snilld sko :+D

En jæja ég ætla að halda áfram að gera ekki neitt eða kíkja á rúntinn eða eitthvað...bið að heilsa ykkur í bili :*


P.S.Brynhildur ég gerði þetta bara fyrir þig'eskan :)

Posted at 12:47 by EyKey
Comments (4)  

Thursday, June 16, 2005
Brynhildur er orðin leið á hinum hausnum þannig að ég ákvað að skipta

;o)

Posted at 19:18 by EyKey
Comments (2)  

Tuesday, May 17, 2005
Lazzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzy

...jebbz þessir dagar eru búnir að vera þvílíkt lazzzy, Otti náttla lasinn og svona þannig að við liggjum bara í leti og horfum á Desperate Housewives, The O.C., One Tree Hill, Friends, Arrested Development, Joey og aðra svona þætti!!!

Í gær skellti ég mér á sjóinn...en ætlunin var að fara og týna egg í fuglasteininum þannig að við fórum á Oddi V og Hjalta Frey, ég, Katla og Tobbi fórum á Hjalta Frey og svo þegar við komum að steininum skelltu Katla og Hafþór sér upp í hann eeeeeeeeeeeeeeeeeeeen það voru bara engin egg!!!! Þannig að við fórum bara að sigla um og æfa okkur...og ég er nú alveg ótrúlega klár þó ég segi sjálf frá...ég lagði tvisvar upp að Oddi á fullri ferð eins og ég hefði bara aldrei gert annað! Svo sigldi ég bara heim og komst að því að ég sé EKKI NEITT...ég sá ekki siglingaljósin þegar ég var að koma í höfnina fyrr en ég var næstum því komin uppá þau...þvílíkt blindur auli!!!!
En allavega þá var geggjað gaman og langt síðan ég fór svona langt út á Hjalta :o)
Hrafnhildur það vantaði samt þig!!!!

Hey já svo erum við skötuhjúin gengin í jeppaklúbb...hann heitir Gemlingarnir...endilega tékkiði á honum hér...bara gaman að því!

Svo er bara sumarið komið og spurning um að fara að draga fram línuskautana?!

Well best að halda áfram að hirfa á OC allt að verða vitlaust þar ;o)

Posted at 16:06 by EyKey
Comments (7)  

Monday, May 16, 2005
Haus...?!

...Very long time...no write!!!
Já síðast þegar ég skrifaði þá var ég á leiðinni til Parísar...og ég er víst löngu komin þaðan.

Anyways þá skelltum við systkinin okkur til Parísar og við skemmtum okkur alveg konunglega. Við fórum í túristarútu um alla París eins og alvöru Japanar með myndavélarnar hangandi um hálsinn og allt. Upp á Sigurbogann, inn í Notre Dame kirkjuna, upp í Eiffelturninn, inn í Louvre safnið og í fullt af búðum :o) BARA gaman sko! Sagan segir að Trausti bróðir sé 7cm styttri eftir þessa ferð með mér því ég neyddi hann til að labba útum allt...en það veitti nú svo sem ekki af að stytta hann aðeins ;) Svo þegar við komum heim þá var bara farið beint að vinna...dugnaður sko!

Núna er ég svo bara í fríi og á föstudaginn skelltum við skötuhhjúin ásamt Gumma, Gumma og Vidda okkur í Þjórsárdal...með tjald...í útilegu!!! En hún entist nú ekki lengi þar sem að Otti var kominn með ælupest á laugardagsmorguninn þannig að við fórum bara heim og hann er ennþá að jafna sig þessi elska!!!

Oh um daginn var ég að hugsa um að ég þyrfti nú að fara að blogga og það var eitthvað svo margt sem ég hafði að segja þá en núna þá bara...blank!!!!

Verð samt að segja að ég sá snilldarmynd um daginn...SpongeBob Squarepants...þvílík gargandi snilld...it is a möst see!!!

Jæja ég ætla að fara a athuga hvort að það sé ekki eitthvað gott í matinn á þessu heimili...bæó

Posted at 19:53 by EyKey
Comments (3)  

Thursday, April 28, 2005
Magnað magnað...

...þetta fann ég inni á barnalandi og ég hreinlega lá í kasti við að lesa þetta!
Enjoy...


Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!

Fituprófið...

Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið...

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið...

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið...

Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið...

Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið...

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

Sköpunargáfuprófið...

Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

Bílprófið...

Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna...

Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans - 9/10 verða eftir.

Þolpróf karla...

Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!

Lokaprófið...
Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.

Ert þú tilbúin(n) til að eignast barn?

Ég myndi svo sem ekkert kippa mér upp við það að barneignir myndu minnka í kjölfarið á þessu!

Posted at 10:41 by EyKey
Comments (5)  

Wednesday, April 27, 2005
Vinnuvikan á enda...

...og mín á leiðinni til Parísar :o)

Það er nú svo sem ekki mikið að frétta þessa dagana en ég hef nú reyndar eina frétt sem mér finnst á sama tíma vera skemmtileg og sorgleg! Þannig er mál með vexti að litli yndislegi guðsonur minn...sem er reyndar að stækka mjög hratt...og hans yndislega fjölskylda hafa fest kaup á húsi á Vopnafirði og ætla bara að búa þar!!!
Það er náttúrulega hið besta mál oað þau séu búin að kauoa sér hús, úti á landi þar sem börnin geta leikið sér úti án þess að það sé fylgst með þeim og svona en það er á VOPNAFIRÐI!!! Þau hefðu mögulega ekki komist lengra frá mér...og það er það sem mér finnst svo sorglegt við þetta...en engu að síður til hamingju með nýja kotið dúllurnar mínar :*

Annars er ég barasta á leiðinni á fund svo í nudd og svo í reykjavík þar sem ég þarf að ná í voucherinn fyrir hótelinu í París...gaman gaman :-)

Jæja er farin að græja mig á fundinn ógurlega...blæjó

P.S. Hrafnhildur þessi var bara fyrir þig dúllan mín :)

Posted at 11:16 by EyKey
Comment (1)  

Tuesday, April 19, 2005
Bloggfærsla...

Jæja það er víst óhættt að segja að það sé soldið langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna inná but here goes...

Þegar ég skrifaði síðast var ég á leiðinni á Fermingarafmælið og það var nú bara alveg þrælfínt. Það var haldið í Salthúsinu og fengum við súpu og kjukling að borða. Grétar, Bjössi og Bjöggi spiluðu aðeins og það var nú bara hörkustemning í því...þangað til þeir voru beðnir um að stoppa því að þá voru einhverjir trúbadorar að byrja að spila niðri...og svona að öllu gríni slepptu þá voru það þeir alverstu trúbadorar sem ég hef á ævinni heyrt í!!!...og hefur maður nú farið í ófá partíin þar sem að misreyndir menn hafa reynt fyrir sér á gítarnum!
En ég fór nú bara snemma heim þar sem að ég var að fara að vinna daginn eftir en það var víst hörkustemmari á Lukku Láka og fóru einhverjir þangað og djömmuðu langt fram eftir nóttu!
Ég auðvitað gleymdi myndavélinni minni heima þannig að það eru engar myndir frá þessu því miður!

Svo á fimmtudaginn kíktum við skötuhjúin á formlega opnun Hópsness e.h. / Sjólist hjá tengdó og var það svaka fínt...fullt af fólki,matur og ofvirkir menn að hella í glösin hjá manni, það var alveg magnað maður náði aldrei að komast niður fyrir hálft glas þá voru þeir mættir til að bæta í...ekki erfitt að verða fullur í svona sko!

Svo seinnipartinn á föstudaginn þá fórum við skötuhjúin, Katla og Helgi af stað með börnin okkar (unglingadeildina) á Gufuskála. Þar sem að við erum svo ótrúlega skemmtileg þá tókum við gsm-símana og úrin af öllum krökkunum....og VÁ eru þau háð þessari blessuðu klukku! En þetta var alveg geggjuð helgi, þar sem að þau vissu aldrei hvað klukkan var þá borðuðu þau bara þegar þau voru svöng, þau fóru að sofa þegar þau voru þreytt og vöknuðu þegar þeim fannst þau vera búin að sofa nóg en ekki eftir einhverri klukku.
Á laugardeginum byrjuðum við á því að borða morgunmat og svo klæddum við okkur í útigallana og fórum af stað útí rigninguna í átt að turninum, en á Gufuskálum er ca. 20 metra hár turn sem hægt er að síga niður úr, og það var einmitt það sem við ætluðum okkur að gera.
Þrátt fyrir mikið rok og mikla rigningu fórum við af stað uppí turninn og svo var bara hafist handa við að síga og það stóðu sig bara nánast allir eins og hetjur...ég er ekkert smá stolt af þeim, sum þeirra höfðu aldrei sigið áður og fóru bara í fyrsta skipti eins og ekkert væri niður 20 metrana!
Seinnipartinn fórum við svo í hellaskoðanir með staðarhaldaranum. Fullt af flottum hellum þarna...alveg magnað sko!
Svo fórum við bara heim á sunnudeginum...og gekk það ágætlega fyrir utan eitt sprungið dekk! Bara gaman að því :-)

Svo byrjar bara vinnuvikan seinnipartinn í dag...smá skiptivinna og svo eftir hana þá eru bara nokkrir dagar í París...en ég var nú sennilega ekki búin að segja ykkur það en þá er ég að fara til Parísar með honum Trausta bró í heila 6 daga...han var svo góður þessi elska að bjóða litlu systir með sér til Parísar...gaman gaman!

En þangað til næst...Ta-Ta

Posted at 13:40 by EyKey
Comments (3)  

Saturday, April 09, 2005
Á leiðinni...

...í fermingarafmæli!
Jammz það er víst komið að hinu árlega 10 ára fermingarafmælinu!!

Skemmtið ykkur hvar sem þið eruð :)

Posted at 21:10 by EyKey
Comments (2)  

Tuesday, April 05, 2005
Myndir...

Jæja þá eru myndirnar frá síðustu helgi komnar inn...tékkiði á þeim hér!!!

Posted at 20:59 by EyKey
Comments (6)  

Next Page